WOOOF duck er náttúrulegt og heilnæmt fóður fyrir alla hunda.
- 75% próteina úr andakjöti og 25% próteina úr grænmeti.
- Eina uppspretta dýrapróteina er úr andakjöti.
- Inniheldur grænmeti svosem kartöflur og tómata.
- Inniheldur ávexti svosem epli og trönuber.
- Stuðlar að heilbrigðum og gljáandi feldi.
- Inniheldur engin lyktar-, litar- eða bragðefni.
- Sérlega auðmelt
WOOOF duck fóðrið hentar sérlega vel hundum sem hafa óþol fyrir ákveðnum tegundum dýrapróteina.
Lykillinn að góðu fóðri eru náttúruleg hráefni. Að sjálfsögðu vilt þú vita nákvæmlega hvað hundurinn þinn er að borða! Heilnæm og þekkt hráefni sem þú getur treyst. Vítamín og steinefni skipta líka miklu máli.
Öll hráefni sem notuð eru í WOOOF fóðrið eru valin af kostgæfni. Þetta stuðlar að heilbrigði, vellíðan og langlífi hundsins þíns. Mikilvægt er að hráefnin sem notuð eru séu náttúruleg en það skiptir einnig gífurlega miklu máli að hundurinn þinn geti nýtt öll næringarefnin í fóðrinu. Þess vegna er ofuráhersla lögð á fóðrið sé auðmelt. Meltanleiki fóðursins þarf að vera góður svo að næringarefnin í fóðrinu skili sér og nýtist hundinum.
Hvers vegna ættir þú að velja pressaða bita?
Fóður sem framleitt er í pressuðum bitum þarfnast minni orkunotkunar og eru skaðleg áhrif framleiðslunnar á umhverfið því minni. Þar að auki gerir þessi framleiðsluaðferð það að verkum að hráefnin sem notuð eru halda næringargildi sínu þar sem bitunum er haldið undir 100°C í gegnum allt framleiðsluferlið.
Með þessum hætti er tryggt að öll vítamín, steinefni og önnur efni haldist í fóðrinu. Pressaðir bitar eru auðmeltanlegir þar sem þeir leysast upp í maganum á mun skemmri tíma en fóður sem framleitt er á hefðbundinn hátt.
Hráefni
Andakjöt (22,5%), gelatínuð hrísgrjón, gelatínaðar kartöflur, baunir, alifugla fita, eggjaduft, laxa olía, þurrkaðir tómatar, sólblómaolía, þurrkuð epli, trönuber, línolía, spirulina, echinacea, glúkósamín, kondróítín, yucca schidigera.