WOOOF salmon er náttúrulegt pressað fóður fyrir allar stærðir og gerðir hunda.
- Ríkt af heilnæmum próteinum eingöngu úr laxi
- 100% hveiti (glúten) laust vegna þess að notað er gerjað korn í fóðrið
- Ríkt af Omega-3 sem stuðlar að heilbrigðum og gljáandi feldi
- Glúkósamín, kondróítín og omega-3 stuðla að góðri liðheilsu, aukinni hreyfigetu og draga úr líkum á brjósklosi
- Inniheldur engin lyktar-, litar- eða bragðefni
- Sérlega auðmelt
- WOOOF salmon er frábær kostur fyrir vandláta hunda, hunda sem hafa ofnæmi fyrir nauta- og kjúklingapróteini, eldri hunda og hunda sem hafa vöðva eða liðavandamál
Lykillinn að góðu fóðri eru náttúruleg hráefni. Að sjálfsögðu vilt þú vita nákvæmlega hvað hundurinn þinn er að borða! Heilnæm og þekkt hráefni sem þú getur treyst. Vítamín og steinefni skipta líka miklu máli.
Öll hráefni sem notuð eru í WOOOF fóðrið eru valin af kostgæfni. Þetta stuðlar að heilbrigði, vellíðan og langlífi hundsins þíns. Mikilvægt er að hráefnin sem notuð eru séu náttúruleg en það skiptir einnig gífurlega miklu máli að hundurinn þinn geti nýtt öll næringarefnin í fóðrinu. Þess vegna er ofuráhersla lögð á fóðrið sé auðmelt. Meltanleiki fóðursins þarf að vera góður svo að næringarefnin í fóðrinu skili sér og nýtist hundinum.
Hvers vegna ættir þú að velja pressaða bita?
Fóður sem framleitt er í pressuðum bitum þarfnast minni orkunotkunar og eru skaðleg áhrif framleiðslunnar á umhverfið því minni. Þar að auki gerir þessi framleiðsluaðferð það að verkum að hráefnin sem notuð eru halda næringargildi sínu þar sem bitunum er haldið undir 100°C í gegnum allt framleiðsluferlið.
Með þessum hætti er tryggt að öll vítamín, steinefni og önnur efni haldist í fóðrinu. Pressaðir bitar eru auðmeltanlegir þar sem þeir leysast upp í maganum á mun skemmri tíma en fóður sem framleitt er á hefðbundinn hátt.
Innihaldsefni
Lax / (dýraprótein) melt korn, alifugla fita, kondróítín, glúkósamín, laxa olía, L-karnitín, taurín.